Skóla- og frístundaliði í Hraunasel – Hraunvallaskóli
Umsóknarfrestur frá: 22.09.2022
Umsóknarfrestur til: 06.10.2022
Tengiliður: Lars J. Imsland
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 30-50% starf út skólaárið 2022-2023 í frístundaheimilið Hraunsel.
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Hraunseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. – 4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunsel. Starfsemi Hraunsels er í skólanum og í húsnæði á skólalóð. Hraunsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl. 17:00, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfar með nemendum með sértækan vanda
- Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
- Starfar í frístundaheimili og á sumar- og leikjanámskeiðum
- Tekur á móti nemendum og aðstoðar
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
- Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is , Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Sara Pálmadóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar sarap@hafnarfjordur.is eða í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2022.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |