Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel – Lækjarskóli
Umsóknarfrestur frá: 21.09.2022
Umsóknarfrestur til: 05.10.2022
Tengiliður: sigmaringi@laekjarskoli.is
Lækjarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 30-50% starf fyrir skólaárið 2022-2023 í frístundaheimilið Lækjarsel.
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Lækjarseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. – 4. bekk farið í frístundaheimilið Lækjarsel. Starfsemi Lækjarsels er í skólanum og í íþróttahúsinu við Lækjarskóla. Lækjarsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf til klukkan 17:00, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri tómstundamiðstöðvar í Lækjarskóla.
Í tómstundamiðstöðinni er starfsemi frístundaheimilis fyrir 6-9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10-16 ára börn.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfar með nemendum með sértækan vanda
- Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
- Starfar í frístundaheimili og á sumar- og leikjanámskeiðum
- Tekur á móti nemendum og aðstoðar
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Almenn tölvukunnátta
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Dögg Gunnarsdóttir skólastjóri, dogg@laekjarskoli.is og Sigmar Ingi Sigurgeirsson, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5889 eða í gegnum netfangið sigmaringi@laekjarskoli.is.
Umsóknarfrestur til og með 5. október 2022.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |