Kennari – Leikskólinn Norðurberg

Umsóknarfrestur frá: 20.09.2022

Umsóknarfrestur til: 04.10.2022

Tengiliður: Anna Sigurborg Harðardóttir

Leikskólinn Norðurberg óskar eftir að ráða kennara í 85 % starf.

Leikskólinn Norðurberg er 6 deilda leikskóli í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Þar dvelja að meðaltali 101 barn og um 32 starfsmenn starfa þar. Áherslur leikskólans eru: umhverfismennt og útikennsla (Grænfána leikskóli), jákvæð samskipti (Að næra hjartað/PMT), hollusta og hreyfing, vináttuleikskóli Barnaheilla, snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna og innleiðing á læsi og stærðfræði. Á Norðurbergi er starfsfólk með mikinn metnað fyrir starfi sínu og starfsánægja og starfsandi er góður. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa metnað og áhuga fyrir starfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri, annaborg@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5851 og Gunnhildur Grímsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, gunnhildur.gr@hafnarfjordur.is í síma 555-3484.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2022.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022