Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli

Umsóknarfrestur frá: 13.09.2022

Umsóknarfrestur til: 27.09.2022

Tengiliður: gudbjorgh@hraunvallaskoli.is

Vegna stækkunar leikskólans vantar okkur deildarstjóra til starfa í fullt starf.

Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Hraunvallaleikskóli er nú fjögurra deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Frá og með haustinu verður hann sex deilda leikskóli. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans. 

Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingum sem hafa metnað fyrir starfinu. 

Ráðið verður í starfið eftir samkomulagi.

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu háskólamenntaður deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
  • Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A./B.S./B.Ed.) sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er kostur
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Hjaltadóttir leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur framlengdur til og með 27. september.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022