Verkefnistjóri teiknistofu

Umsóknarfrestur frá: 08.09.2022

Umsóknarfrestur til: 01.10.2022

Tengiliður: Helga Stefánsdóttir

Umhverfis- og skipulagssvið óskar eftir að ráða verkefnistjóra teiknistofu í 100% starf. Á umhverfis- og skipulagssviði eru um 48 stöðugildi. Næsti yfirmaður starfsmanns er forstöðumaður á umhverfis- og skipulagssviði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á allri almenni teiknivinnu fyrir svið og deildir sveitarfélagsins
  • Ber ábyrgð á og uppfærir teikningaskrá og gagnagrunni bæjarfélagsins
  • Ber ábyrgð á gerð og uppfærslu grunngagna fyrir landupplýsingakerfi og kortagrunnar
  • Vinna við gerð og breytingar á aðal- og deiliskipulagi í samvinnu við skipulagsdeild
  • Ber ábyrgð á að hæðarblöð, mæliblöð og lóðarblöð séu útbúin í samræmi við deiliskipulag
  • Samantekt gagna fyrir lóðasamninga.
  • Vinnur við sérhæfð teikniverkefni.
  • Umsjón með skönnun gagna í tengslum við landupplýsingarkerfi s.s. vegna deiliskipulagsuppdrátta, lóðarblaða
  • Ber ábyrgð á afgreiðslu, frágangi og geymslu gagna.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.Sc.) á sviði landfræði eða sambærileg menntun
  • Menntun á sviði tækniteiknunar og viðtæk reynsla á því sviði sem og af Acad og GIS kerfum
  • Reynsla af sambærilegum störfum og af sviði skipulags- og byggingarmála æskileg 
  • Reynsla á lóðablaðagerð, kortagerð, landupplýsingavinnslu og uppdrátta skilyrði 
  • Reynsla af stjórnsýslu og lagaumhverfi sveitarfélaga kostur 
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Góð íslenskukunnátta

Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Stefánsdóttir, forstöðumaður Framkvæmda og rekstrardeildar, í síma 585-5600, helgas@hafnarfjordur.is og Sigurður Haraldsson sviðstjóri Umhverfis- og skipulagssvið í síma 585-5600, siggih@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2022.

Greinargóð ferilsskrá og starfsréttindi fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022