Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur frá: 15.09.2022

Umsóknarfrestur til: 29.09.2022

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum þroskaþjálfa í 50% starf út skólaárið 2022-2023 til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Þegar hverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.

Helstu verkefni:

  • Að veita nemendum með sérþarfir þjálfun, leiðsögn og stuðning
  • Vinna með félagsfærni og aðlaga námefni og námsaðstæður
  • Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskrám í samstarfi við kennara og deildarstjóra
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH)
  • Þekking á SMT æskileg
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 / ingibjorg@skardshlidarskoli.is eða Rannveig Hafberg, aðstoðarskólastjóri í síma 6645874 / rannveig@skardshlidarskoli.is

Kostur ef viðkomandi getur byrjað sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 29. september næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélagi Íslands. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022