Starfsmaður vatnsveitu
Umsóknarfrestur frá: 12.09.2022
Umsóknarfrestur til: 26.09.2022
Tengiliður: Guðmundur Elíasson
Laus er til umsóknar staða starfsmanns vatnsveitu Hafnarfjarðar. Starfsmaður vatnsveitu aðstoðar við viðhalds- og eftirlitsverkefni sem honum eru falin. Hann fylgir eftir samþykktum verkferlum og stöðlum fyrir vatnsveitu bæjarins. Viðkomandi ber ábyrgð á viðhalds- og eftirlitsverkefnum sem honum eru falin ásamt ábyrgð á öllum áhöldum og búnaði vatnsveitu sem unnið er með og að öll umgengni sé til fyrirmyndar. Um er að ræða 100% starf. Starfið heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið sem er með aðsetur að Norðurhellu 2.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Viðhald og eftirlit með vatnsveitukerfi, dælustöðvum, miðlunargeymi og lokahúsum
- Viðhald, viðgerðir og eftirlit með dreifikerfi vatnsveitu Hafnarfjarðar
- Endurnýjun á gömlum heimæðum og lagning á nýjum
- Umsjón, eftirlit, viðhald og viðgerðir í vatnsbólinu í Kaldárseli
- Álestur og utanumhald aflestra
- Viðhald, viðgerðir og umsjón með brunahönum
- Umsjón með öllum vatnsafgreiðslustútum fyrir höfnina
- Lekaleit í veitukerfum
- Árstíðabundin verkefni við opnun og lokun vatnslagna
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð reynsla af sambærilegu starfi
- Æskilegt að hafa lokið jarðlagnanámskeiði
- Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Geta til að vinna undir álagi
- Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
- Almenn tölvukunátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
- Íslensku- og enskukunnátta
- Ökuréttindi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri í síma 585-5500 eða í gegnum tölvupóst: gudmundure@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2022.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |