Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata

Umsóknarfrestur frá: 15.09.2022

Umsóknarfrestur til: 01.10.2022

Tengiliður: Ásdís Auðunsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er á Öldugötu í Hafnarfirði. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf, sem unnið er í vaktavinnu, morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs

Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum

Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda

Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af sambærilegum störfum kostur

Áhugi á málefnum fatlaðs fólks

Góð íslenskukunnátta

Þjónustulund og jákvæðni í starfi

Hæfni í mannlegum samskiptum

Frumkvæði og samviskusemi

Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ásdís Auðunsdóttir í síma: 585-5763 / 664-5727 netfang: asdisa@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2022

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022