Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima – Áslandsskóli
Umsóknarfrestur frá: 21.09.2022
Umsóknarfrestur til: 06.10.2022
Tengiliður: evabjork@aslandsskoli.is
Skóla- og frístundaliði í fyrir skólaárið 2022 – 2023.
Áslandsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf á frístundaheimilið Tröllaheima.
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í 1. – 4. bekk í frístundaheimilinu Tröllaheimum eftir hádegi virka daga frá kl. 13:00 til kl. 17:00. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Tröllaheimar býður upp á fjölbreytt tómstundarstarf þar sem áhersla er lögð á að bjóða upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Á skipulagsdögum skólans og virkum dögum í jóla- og páskafríi er frístundaheimilið opið frá kl. 8:00 til kl. 17:00.
Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og eru um 500 nemendur í skólanum. Einkunnarorð skólans eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
- Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
- Stuðla að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Áhugi á faglegu starfi með börnum og unglingum
- Góð íslenskukunnátta
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Stundvísi og samviskusemi
- Geta til að vinna undir álagi
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Eva Björk Jónsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar evabjork@aslandsskoli.is eða í síma 664-5785 og Unnur Elfa Guðmundsdóttir skólastjóri, unnur@aslandsskoli.is, eða í síma 585-4600.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2022
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |