Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði
Umsóknarfrestur frá: 14.09.2022
Umsóknarfrestur til: 29.09.2022
Tengiliður: Andri Ómarsson
Jólaþorpið í Hafnarfirði auglýsir eftir jólabarni í tímabundið hlutastarf.
Jólaþorpið í Hafnarfirði er jólamarkaður á vegum Hafnarfjarðarbæjar sem hefur sett svip sinn á mannlífið í miðbæ Hafnarfjarðar á aðventunni í tuttugu ár. Laus er til umsóknar staða hugmyndaríks sérfræðings sem tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd Jólaþorpsins og tengdra viðburða í nóvember og desember. Starfið fer að mestu fram um helgar í nóvember og desember og er ca. 40-60% starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á Jólaþorpinu í Hafnarfirði og tengdum viðburðum. Meðal verkefna eru almenn upplýsingagjöf, samningagerð, öflun leyfa, öryggismál og viðvera á opnunartíma Jólaþorpsins í desember
- Aðstoð við öflun umsókna í jólahúsin, samskipti söluaðila, afgreiðsla umsókna, samningagerð, upplýsingagjöf og þjónusta
- Skipulagning og framkvæmd viðburðadagskrár, s.s. bókanir á skemmtikröftum og listahópum
- Vinnur að markaðs- og kynningarmálum og útfærslu, samræmingu og framkvæmd fjölbreyttra markaðsaðgerða, s.s. birtingar á samfélagsmiðlum
- Móttaka og þjónusta við sölufólk og gesti
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Grunnnám á háskólastigi (B.A/B.S) sem nýtist í starfi, diploma á sviði viðburðastjórnunar er kostur
- Reynsla af undirbúningi og framkvæmd viðburða
- Þekking og reynsla af markaðssetningu og innsýn í ólíkar nýmiðlunarleiðir og hagnýtingu þeirra
- Hæfni til að sinna mörgum viðfangsefnum og geta til að vinna undir álagi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
- Rík samskiptahæfni og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
- Geta til að bregðast við krefjandi og óvæntum uppákomum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Fræðagarð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Andri Ómarsson verkefnastjóri menningar- og markaðsmála í síma 6645779 og andriom@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2022.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |