Kennari – íslenska sem annað mál 50% – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur frá: 15.09.2022

Umsóknarfrestur til: 29.09.2022

Tengiliður: ingibjorg@skardshlidarskoli.is

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum kennara í 50% starf til að sinna kennslu fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Þegar hverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í íslensku sem öðru máli
  • Annast stöðumat á nýjum nemendum
  • Taka þátt í móttökuviðtölum
  • Taka þátt í innleiðingu á breyttum áherslum aðalnámskrá grunnskóla í íslensku sem annað mál, menningarfærni og fjöltyngi í skólastarfi
  • Taka þátt í uppbyggingu á nýjum skóla í samvinnu við stjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking og reynsla af kennslu í íslensku sem öðru máli er kostur
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta 

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871/ ingibjorg@skardshlidarskoli.is eða Rannveig Hafberg, aðstoðarskólastjóri í síma 6645874 / rannveig@skardshlidarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2022.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022