Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara

Umsóknarfrestur frá: 09.09.2022

Umsóknarfrestur til: 25.09.2022

Tengiliður: Sjöfn Guðmundsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling í starf forstöðumanns stuðningsþjónustu eldri borgara. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg stjórnun og rekstur stuðningsþjónustu eldri borgara
  • Umsjón, mat, eftirlit og eftirfylgni með frammistöðu og þjónustu stuðningsþjónustu eldri borgara
  • Fjárhagsáætlunargerð, kostnaðareftirlit, starfsmannamál, almenn áætlunargerð, ýmis stefnumótun, forgangsröðun verkefna og almenn skrifstofustörf
  • Hefur frumkvæði að framþróun og nýsköpun í málefnum eldri borgara
  • Ráðleggingar, ráðgjöf og ýmis upplýsingagjöf til íbúa og hagaðila
  • Stýrir og skráir vinnutímaskipulag starfsfólks í Curron
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Mastersgráða (M.A/M.S) sem nýtist í starfi s.s. á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, sálfræði, félagsráðgjöf eða háskólapróf (B.A/B.S) sem nýtist í starfi og a.m.k. 5 ára starfs- og stjórnunarreynsla á fagsviðinu
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Leiðtogafærni og geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Þekking á lögum sem snúa að málaflokknum
  • Reynsla af vinnutímaskipulagi í Curron kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku er kostur
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar

Nánari upplýsingar veitir Sjöfn Guðmundsdóttir, deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustu, sjofng@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur til og með 25. september 2022.

Greinargóð ferilskrá og prófskírteini fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022