Deildarstjóri launadeildar

Umsóknarfrestur frá: 09.09.2022

Umsóknarfrestur til: 25.09.2022

Tengiliður: Kristín Sigrún Guðmundsdóttir

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum deildarstjóra til að stjórna rekstri launadeildar og taka þátt í verkefnum er snúa að aukinni skilvirkni, skipulagi og rafrænni stjórnsýslu. Launadeild tilheyrir fjármálasviði bæjarins og er næsti yfirmaður sviðsstjóri fjármálasviðs. Í launadeild starfa fjórir starfsmenn sem heyra undir deildarstjóra launadeildar.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg stjórnun og rekstur launadeildar
  • Ábyrgð á mánaðarlegri launavinnslu
  • Stýrir gerð fjárhagsáætlunar launa í samráði við stjórnendur
  • Veitir ráðgjöf til stjórnenda varðandi launa- og tímastjórnarkerfi
  • Úrvinnsla og birting tölfræðilegra gagna og skýrslugerð úr launakerfum
  • Ber ábyrgð á framkvæmd kjarasamninga í launavinnslu
  • Umsjón með miðlægri skráningu og yfirferð gagna í launa- og mannauðskerfum
  • Sinnir upplýsingamiðlun til stjórnenda varðandi laun og launaafgreiðslu
  • Umsjón og ábyrgð á tímaskráningarkerfinu Vinnustund. Annast uppsetningu vaktakerfa, breytingar og uppfærslur er viðkoma kerfinu í samstarfi við mannauðsdeild
  • Annast innleiðingu og þróun á launa- og mannauðskerfinu Kjarna í samstarfi við mannauðsdeild
  • Ábyrgð á gerð leiðbeininga fyrir stjórnendur og kennslu á launa- og tímaskráningarkerfi
  • Önnur verkefni samkvæmt stafslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A/B.S) á sviði viðskiptafræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi
  • Viðamikil reynsla af sambærilegu starfi æskileg s.s. launamálum og launavinnslu
  • Reynsla af starfsmannahaldi og verkefnastjórnun æskileg
  • Þekking og reynsla af tímaskráningarkerfum og bakvinnslu, uppsetningu vaktakerfa o.s.frv.
  • Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg
  • Þekking á launakerfinu Kjarna æskileg
  • Leiðtogafærni, frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar
  • Þjónustulund, góð framkoma og jákvætt viðmót 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Nákvæmni í vinnubrögðum og töluglögg(ur)
  • Geta til að vinna undir álagi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Sigrún Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri, kristin@hafnarfjordur.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2022. 

Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur