Umsjónarkennari í miðdeild – Skarðshlíðarskóli
Umsóknarfrestur frá: 23.09.2022
Umsóknarfrestur til: 02.10.2022
Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir
Skarðshlíðarskóli óskar eftir umsjónarkennara á miðstigi í tímabundnar afleysingar fram að jólum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Þegar hverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna kennslu og umsjón í 6.bekk
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á miðstigi og lestrarkennslu
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871/ ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2022.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |