Aðstoðardeildarstjóri tómstundarmiðstöðvar – Tímabundin staða – Engidalsskóli

Umsóknarfrestur frá: 20.09.2022

Umsóknarfrestur til: 04.10.2022

Tengiliður: Margrét Halldórsdóttir

Engidalsskóli óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn aðstoðardeildarstjóra í fullt starf í frístundastarf skólans. Starfið er tímabundin afleysing til 1.ágúst 2023.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk.

Í Engidalsskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi, auk þess sem vellíðan nemenda og starfsmanna er ávallt höfð að leiðarljósi. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, samþættingu námsgreina og teymisvinnu. Skólinn er heilsueflandi og flaggar grænfána þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt en við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa.

Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 – 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10-12 ára börn.

Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Helstu verkefni:

  • Umsjón og ábyrgð með starfsemi tómstundamiðstöðvar ásamt deildarstjóra
  • Sinnir forvarna- og fræðslustarfi um ýmis málefni sem tengjast börnum og ungmennum
  • Skipulagning og framkvæmd verkefna og viðburða
  • Sér til þess að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila sé virkt
  • Stýrir verkaskiptingu milli starfsmanna og veitir leiðsögn um framkvæmd starfseminnar
  • Stuðlar að góðu samstarfi við ýmsa aðila, s.s. foreldra, skóla, félagsþjónustu, aðrar félagsmiðstöðvar og frístundaheimili og aðrar stofnanir og samtök sem vinna að málefnum barna og unglinga
  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Bakkalár háskólapróf s.s.á sviði uppeldis og menntunarfræða, tómstundarfræði eða annað háskólanám sem nýtist í starfi.
  • Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum
  • Áhugi á málefnum barna og forvörnum.
  • Þekkingu á að vinna með hópastarf
  • Reynsla af þverfaglegu samstarfi
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið í frístundaheimili eða félagsmiðstöð
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi. Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Samskipta og samstarfshæfni    

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is  í síma 5554433 eða Unnur Björk Arnfjörð, deildarstjóri frístundastarfs, unnurbjork@engidalsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2022.

Greinargóð ferilskrá þarf að fylgja umsókninni. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022