Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi
Umsóknarfrestur frá: 20.09.2022
Umsóknarfrestur til: 27.09.2022
Tengiliður: Árný Steindóra Steindórsdóttir
Leikskólinn Hlíðarendi leitar að starfsmönnum í leikskólann í 100% starf. Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem hafa reynslu af vinnu með börnum.
Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
- Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur náið í samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og Aðalnámskrá leikskóla
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af uppeldis eða kennslustörfum æskileg
- Reynsla af starfi á leikskólum æskileg
- Reynsla af sambærilegum störfum kostur
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Jákvæðni, lausnamiðun og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Nánari upplýsingar um störfin veitir Fjóla Kristjánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið fjolakr@hafnarfjordur.is
Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |