Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur

Umsóknarfrestur frá: 07.09.2022

Umsóknarfrestur til: 05.10.2022

Tengiliður: Telma Ýr Friðriksdóttir

Bjarkalundur auglýsir eftir sérkennara í 100% starf.

Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans. 

Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku. 

Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning
  • Vinnur í teymi með þroskaþjálfum að þeim verkefnum sem sérkennslustjóri felur honum
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskrár og fylgja henni eftir
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sérkennaramenntun eða þroskaþjálfamenntun (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Þekking eða reynsla í atferlisþjálfun
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Góð íslenskukunátta skilyrði
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH)
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar 
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Forgangur á leikskóla

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir um starfið veitir Telma Ýr Friðriksdóttir, leikskólastjóri, telmayr@hafnarfjordur.is sími: 555-4941. 

Umsóknarfrestur framlengdur til og með 5. október 2022

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélagi Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022