Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Umsóknarfrestur frá: 05.09.2022
Umsóknarfrestur til: 27.09.2022
Tengiliður: sigthrudur@hafnarfjordur.is
Leikskólinn Hörðuvellir auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% starf. Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaða einstaklinga eða einstaklinga með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Leikskólinn er fjögurra deilda með 75 börn. Hörðuvellir eru á fallegum útsýnisstað við lækinn.
Einkunnarorð leikskólans er: Leikur – Reynsla – Þekking.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigþrúður Sigurþórsdóttir leikskólastjóri, sigthrudur@hafnarfjordur.is, eða í síma 555-0721
Umsóknarfrestur framlengdur til 27.09 2022
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli | 30.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |