Kennarar – Skarðshlíðarleikskóli
Umsóknarfrestur frá: 02.09.2022
Umsóknarfrestur til: 30.09.2022
Tengiliður: Berglind Kristjánsdóttir
Skarðshlíðarleikskóli óskar eftir að ráða metnaðarfulla kennara til starfa í 50-100% starf.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs, staðsettur að Hádegisskarði 1.
Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar. Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn.
Þar sem þetta er nýlegur skóli færð þú gullið tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og taka þátt spennandi samstarfi við grunnskóla, tónmenntaskóla, íþróttahús og bókasafn, því við verðum öll í sömu byggingunni. Við leggjum áherslu á að skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur í leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir leikskólastjóri, berglindkrist@hafnarfjordur.is eða í síma 527 7380
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 30. september 2022
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Önnur störf
Fjármálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Deildarstjóri launadeildar | 25.09.2022 |
Þjónustu- og þróunarsvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar – Jólaþorpið í Hafnarfirði | 29.09.2022 |
Umhverfis- og skipulagssvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Verkefnistjóri teiknistofu | 01.10.2022 |
| Tækniteiknari á teiknistofu | 01.10.2022 |
| Starfsmaður vatnsveitu | 26.09.2022 |
Grunnskólar
Leikskólar
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður – Heilsuleikskólinn Hamravellir | 30.09.2022 |
| Sérkennari – Hraunvallaleikskóli | 30.09.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Hraunvallaleikskóli | 04.10.2022 |
| Starfsmaður í leikskóla – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hvammur | 03.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Víðivellir | 07.10.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Tjarnarás | 04.10.2022 |
| Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi | 04.10.2022 |
| Starfsmenn í leikskóla – Leikskólinn Hlíðarendi | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Norðurberg | 04.10.2022 |
| Háskólamenntaður deildarstjóri – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Deildarstjórar – Hraunvallaleikskóli | 27.09.2022 |
| Kennari – Leikskólinn Hlíðarberg | 30.09.2022 |
| Kennarar, hlutastarf – Leikskólinn Hörðuvellir | 29.09.2022 |
| Sérkennari – Leikskólinn Bjarkalundur | 05.10.2022 |
| Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir | 27.09.2022 |
Málefni fatlaðra
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata | 01.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til starfa í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður óskast til afleysinga í Geitungana | 05.10.2022 |
| Starfsmaður í afleysingu – Lundur | 26.09.2022 |
Afleysingastörf
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Önnur tímabundin afleysingastörf | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf – Málefni fatlaðra | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í leikskólum | 31.12.2022 |
| Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla | 31.12.2022 |
Fjölskyldu- og barnamálasvið
| Starfsheiti | Umsóknarfrestur |
|---|---|
| Liðsmaður – tímavinna | 31.12.2022 |
| Persónulegur ráðgjafi – tímavinna | 31.12.2022 |
| Stuðningsfjölskyldur | 31.12.2022 |
| Forstöðumaður stuðningsþjónustu eldri borgara | 25.09.2022 |