Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli

Umsóknarfrestur frá: 21.09.2022

Umsóknarfrestur til: 05.10.2022

Tengiliður: Þórunn Þórarinsdóttir

Víðistaðaskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða í 20 -50 % starf fyrir skólaárið 2022-2023.

Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 530. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði.

Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.

Í tómstundamiðstöðinni er starfsemi frístundaheimilis fyrir 6 – 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 – 16 ára börn. Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli. Hraunkot er fyrir nemendur 1. – 4. bekk í Víðistaðaskóla. Þar gefst foreldrum kostur á að lengja viðveru barna sinna eftir að skólastarfi lýkur eftir þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna með börnum í 1. – 10. bekk að fjölbreyttum verkefnum í samráði við samstarfsfólk og stjórnendur
  • Vinna að þróun frístundastarfs í samstarfi við samstarfsfólk og stjórnendur
  • Stuðla að velferð og félagslegum þroska barnanna í samstarfi við foreldra, samstarfsfólk og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og frístundaheimilisins
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er í starfið
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórunn Þórarinsdóttir Deildastjóri Tómstundamiðstöðvar, email thorunn@vidistadaskoli.is, gsm 6645876.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2022.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022