Kvenkyns skóla- og frístundaliði í baðvörslu- Lækjarskóli

Umsóknarfrestur frá: 21.09.2022

Umsóknarfrestur til: 26.09.2022

Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttir

Lækjarskóli óskar eftir kvenkyns skóla- og frístundaliða í 85% starfshlutfall í íþróttahús

Ráðið er í starfið frá 2. sept. 2022 og er vinnutími að jafnaði frá 8:00 – 15:00.

Lækjarskóli er almennur heildstæður grunnskóli með tæplega 500 nemendur og er staðsettur við Lækinn í hjarta Hafnarfjarðar. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með fjögur meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan, aukinn árangur nemenda og altæka hönnun náms (UDL).

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag. Á síðasta skólaári hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða nemendur, huga að líðan þeirra og öryggi
  • Almenn baðvarsla og þrif í íþróttahúsi
  • Aðstoða og fylgjast með nemendum í búningsklefum
  • Almenn þrif eftir þar til gerðri áætlun, halda húsnæði snyrtilegu
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa jákvætt andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum og unglingum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Stundvísi og samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2022.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dögg Gunnarsdóttir skólastjóri dogg@laekjarskoli.is eða Arna B. Arnardóttir aðstoðarskólastjóri arna@laekjarskoli.is, sími 555-0585.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur
Deildarstjóri launadeildar 25.09.2022